Í boði er áhugavert starf í stafrænu umbreytingarteymi innan Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Teymið vinnur með öllum sveitarfélögum landsins til að koma þeim í fremstu röð í heiminum í stafrænni þjónustu hins opinbera. Við leitum að drífandi og áhugasömum einstaklingi í teymið. Með nýrri hugsun og nálgun og stafrænni umbreytingu spörum við fólki og fyrirtækjum tíma, aukum hagræði og höfum jákvæð áhrif á umhverfið.
Sérfræðingurinn mun vinna að tæknilegri framtíðarsýn fyrir sveitarfélög og að því að efla notendavæna stafræna þjónustu þeirra. Viðkomandi þarf að hafa skýra sýn á þau tækifæri sem stafræn umbreyting felur í sér, búa yfir frumkvæði og krafti til að hrinda breytingum í framkvæmd, hafa hæfni í samskiptum og samvinnu, getu til að taka ákvarðanir, breiða reynslu og þekkingu, auk þess metnað til að ná árangri í þágu sveitarfélaganna, íbúa þeirra og samfélagsins alls.
Jafnræðis skal gætt í hvívetna við ráðningu og leitast er við að starfsmannahópurinn endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Samband íslenskra sveitarfélaga er heilsueflandi vinnustaður og leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu eftir því sem við á
Nánari upplýsingar veita Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs, netfang:anna.gudrun.bjornsdottir@samband.is, og Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.
Áhugasömum er bent á að sækja um hér
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550