Norðurland vestra hleypur af stað – Molduxi Trail snýr aftur í Skagafirði

Áhugi á hlaupum og útivistarviðburðum hefur aukist jafnt og þétt á Íslandi á undanförnum árum og Norðurland vestra er engin undantekning. Í sumar verða haldnir þrír hlaupaviðburðir í landshlutanum sem eiga það sameiginlegt að byggja á frumkvæði heimafólks, efla hreyfingu og útivist og kynna þá fjölbreyttu náttúru sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Skráning í hlaup: 
- Skagastrandarhlaupið: 19. júlí 2026
- Vatnsnes trail run: 24. júlí 2026
- Molduxi trail: 7. ágúst 2026

Að þessu sinni er kastljósinu beint að Molduxi Trail, sem verður haldið í annað sinn föstudaginn 7. ágúst.

Molduxi trail 

Í ár er það hlaupahópurinn 550 Rammvilltar sem sér um skipulagningu og framkvæmd hlaupsins. Hópurinn kom einnig að fyrsta hlaupinu í fyrra og ákvað í kjölfarið að taka verkefnið að sér í ár. Níu einstaklingar mynda framkvæmdateymi hlaupsins, en njóta aðstoðar fjölmargra sjálfboðaliða og samstarfsaðila.

Hugmynd sem varð að veruleika

Hugmyndin að Molduxa Trail varð til þegar SSNV auglýsti eftir aðilum sem vildu standa að nýjum hlaupaviðburðum á Norðurlandi vestra. Hlaupahópurinn 550 Rammvilltar hafði um árabil staðið fyrir smærri hlaupaviðburðum á Sauðárkróki, en lengi rætt um að nýta hið einstaka útivistarsvæði fyrir ofan bæinn til stærra utanvegahlaups. Þar með ákváðu þær að setja sig í samband við SSNV. Þær telja að þetta frumkvæði SSNV að auglýsa eftir hlaupaviðburðum og stuðningurinn þar á bakvið hafi greinilega borið árangur, þar sem nú eru komin tvö flott utanvegahlaup á Norðurlandi vestra fyrir þeirra tilstilli.

Fyrsta Molduxi Trail hlaupið var haldið í fyrra sem tilraunaverkefni og þrátt fyrir þoku og súld mættu um eitt hundrað þátttakendur. Viðtökurnar voru afar góðar og reynslan varð til þess að ákveðið var að halda hlaupið aftur í ár, með það að markmiði að gera góðan viðburð enn betri.

Líkt og Vatnsnes Trail Run hlaut Molduxi Trail styrk úr Sóknaráætlun Norðurlands vestra til að koma verkefninu af stað. Aðstandendur hlaupsins segja þann stuðning hafa skipt sköpum og vonast til að hlaupið geti á næstu árum staðið undir sér með öflugum stuðningi fyrirtækja og samfélagsins.

Tvær stórbrotnar hlaupaleiðir

Í Molduxa Trail eru tvær krefjandi utanvegaleiðir í boði.

12 km leiðin liggur upp að rótum Molduxa og þaðan niður hinar sögufrægu Kimbastaðagötur. Leiðin hentar bæði reyndum hlaupurum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í utanvegahlaupum.

12 km hlaupaleiðin

20 km leiðin er ætluð reyndari hlaupurum. Hún liggur hringinn í kringum Molduxa, upp á topp fjallsins og þaðan niður Kimbastaðagötur áður en hlaupið endar aftur í Litla-Skógi.

20 km hlaupaleiðin

Báðar leiðir hefjast og enda í Litla-Skógi við Hótel Miklagarð. Á leiðinni njóta hlauparar stórbrotins útsýnis yfir Skagafjörð, eyjarnar á firðinum, Héraðsvötn og fjölbreytta náttúru svæðisins. Að hlaupi loknu bíða þátttakenda léttar veitingar og góð stemning á marksvæðinu.

Viðburður sem eflir útivist og samfélagið

Aðstandendur segja Molduxa Trail hafa haft jákvæð áhrif strax eftir fyrsta árið. Fjölmargir hafi byrjað að æfa sérstaklega fyrir hlaupið og uppgötvað hlaupaleiðirnar í fyrsta sinn. Leiðirnar eru nú nýttar mun meira en áður og hafa gert eitt fallegasta útivistarsvæði Skagafjarðar aðgengilegra fyrir bæði heimafólk og gesti.

Hlaupið er jafnframt tímasett á föstudegi, samhliða Króksmótinu. Það gefur fjölskyldum, gestum og áhorfendum tækifæri til að njóta annarrar afþreyingar á svæðinu á sama tíma og fótboltamótið er.

Öflugur stuðningur heimafólks

550 Rammvilltar segja stuðning fyrirtækja og sjálfboðaliða hafa farið fram úr vonum. Langflestir sem leitað hefur verið til varðandi stuðning hafa tekið vel í verkefnið og verið tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Sá stuðningur sé ómetanlegur og forsenda þess að hægt sé að halda viðburð sem þennan.

Meðal styrktar- og samstarfsaðila í ár eru Mjólka, KS, RóCBD, HYBRD, Sauðá, FISK Seafood, Sveitasetrið Hofsstöðum, Hreysti, Hlaupár og Fætur Toga. 

Enn er að bætast í hópinn og þær taka öllum fagnandi sem vilja vera með!

Skráning hafin

Molduxi Trail fer fram föstudaginn 7. ágúst. Ræst verður í 20 km leiðina kl. 17:00 og 12 km leiðina kl. 18:00 frá Litla-Skógi við Hótel Miklagarð.

Allir þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu og í markinu verður boðið upp á hamborgara, kefír og aðrar veitingar. Veitt verða verðlaun fyrir efstu sæti í báðum vegalengdum og að hlaupi loknu verður eftirpartý fyrir þátttakendur.

Hlaupahópurinn 550 Rammvilltar hvetur alla sem hafa áhuga á utanvegahlaupum til að skrá sig til leiks og upplifa eina fallegustu hlaupaleið Norðurlands vestra.