Hér má nálgast fundargerð á pdf.
Mánudaginn 6. júlí 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Hvammstanga. Hófst fundurinn kl. 9:00.
Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
Kjör varaformanns
Samþykktir og þingsköp SSNV
Starfsreglur stjórnar SSNV
Skipulag funda stjórnar SSNV
Fulltrúi í Stafrænt ráð sveitarfélaga
Fulltrúi í stjórn Eims
Fulltrúi í stjórn Markaðsstofu Norðurlands
Fulltrúi SSNV í fulltrúaráð Brákar hses.
Haustþing SSNV
Erindi vegna rannsókna á Landsmóti Hestamanna
Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra
Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda
Starfsmannamál
Framlögð mál til kynningar
a) Fundargerðir
b) Umsagnir
Skýrsla framkvæmdastjóra
Afgreiðslur
Kjör varaformanns
Skv. grein 4.1 í samþykktum samtakanna skiptir stjórn með sér verkum.
Stjórn samþykkir að skipa Jóhönnu Ey Harðardóttur sem varaformann.
Samþykktir og þingsköp SSNV
Framkvæmdastjóri fór yfir samþykktir og þingsköp SSNV með stjórnarmönnum.
Starfsreglur stjórnar SSNV
Lögð fram drög að starfsreglum stjórnar.
Stjórn samþykkir uppfærðar starfsreglur stjórnar.
Skipulag funda stjórnar SSNV
Framkvæmdastjóri leggur fram drög að skipulagi funda stjórnar og fasta liði funda.
Stjórn samþykkir framlagt fundarskipulag. Stjórnarfundir verða að jafnaði fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl. 9:00.
Fulltrúi í Stafrænt ráð sveitarfélaga
Stjórn skipar fulltrúa í Stafrænt ráð sveitarfélaga.
Stjórn samþykkir að skipa Jóhönnu Ey Harðardóttir í Stafrænt ráð sveitarfélaga til tveggja ára.
Fulltrúi í stjórn Eims
Stjórn skipar einn aðalmann í stjórn Eims og einn til vara.
Stjórn samþykkir að skipa Guðmund Hauk Jakobsson sem aðalmann í stjórn Eims til tveggja ára og Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur sem varamann til tveggja ára.
Fulltrúi í stjórn Markaðsstofu Norðurlands
Skv. samningi um rekstur áfangastaðastofu tilnefnir stjórn SSNV einn aðalmann í stjórn Markaðsstofu Norðurlands og einn til vara.
Stjórn samþykkir að skipa Magnús Magnússon sem aðalmann í stjórn Markaðsstofu Norðurlands til tveggja ára og Davíð Birki Tryggvason til vara til tveggja ára.
Fulltrúi SSNV í fulltrúaráð Brákar hses.
Stjórn skipar fulltrúa SSNV í fulltrúaráð Brákar hses.
Stjórn samþykkir að skipa Einar E. Einarsson sem fulltrúa SSNV í fulltrúaráð Brákar hses. til tveggja ára.
Haustþing SSNV
Samkvæmt starfsáætlun SSNV fyrir árið 2026 er Haustþing SSNV áætlað miðvikudaginn 7. október. Þar sem fjármálaráðstefna sveitarfélaga fer fram í sömu viku er lagt til að finna þinginu nýja dagsetningu.
Stjórn samþykkir að Haustþing SSNV fari fram fimmtudaginn 1. október í Húnaþingi vestra og hefjist kl. 14:00.
Erindi vegna rannsókna á Landsmóti hestamanna
Lögð fram styrkbeiðni vegna rannsókna á efnahagslegum, samfélagslegum og umhverfislegum áhrifum af Landsmóti hestamanna.
Stjórn samþykkir styrkbeiðnina og felur framkvæmdastjóra að boða deildarstjóra ferðamáladeildar Háskóla Íslands á Hólum til fundar til að ræða möguleg fleiri rannsóknarverkefni í landshlutanum.
Áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra
Áhersluverkefni Sóknaráætlunar eru verkefni sem hafa beina skírskotun til sóknaráætlunar landshlutans. Áhersluverkefnin skulu samþykkt af stjórn SSNV og þurfa að hljóta staðfestingu stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál. Lögð fram tillaga fyrir stjórn að nýju áhersluverkefni.
Stjórn samþykkir tillögu að nýju áhersluverkefni sem nefnist “Skemmtiferðaskip á Norðurlandi vestra - samstarf, skipulag og markaðssókn”, með fyrirvara um samþykki stýrihóps Stjórnarráðs um byggðamál. Stjórn samþykkir að ráðstafa eftirstöðvum áhersluverkefnisins „Mótun, innleiðing og eftirfylgni samskiptastefnu fyrir svæðið“, að fjárhæð 1.500.000 kr., til verkefnisins á árinu 2026. Fjármögnun vegna ársins 2027 er vísað til fjárhagsáætlunar komandi árs.
Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gagnrýnt nýja reglugerð stjórnvalda um börn með fjölþættar stuðningsþarfir og telur að hún samræmist ekki samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá mars 2025 um ábyrgðarskiptingu og fjármögnun þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna. Að mati Sambandsins felur reglugerðin í sér að ríkið þrengi einhliða þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið og færi þannig kostnað og ábyrgð aftur yfir á sveitarfélög. Málið er lagt fyrir stjórn til kynningar og umræðu.
Stjórn SSNV lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins um þjónustu við börn með fjölþættar stuðningsþarfir. Að mati stjórnar gengur reglugerðin gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgðarskiptingu og fjármögnun þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna.
Stjórn SSNV tekur undir sjónarmið Sambands íslenskra sveitarfélaga um að með reglugerðinni hafi ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á þeim hópi barna sem samkomulagið tekur til og færi þar með kostnað og ábyrgð að nýju yfir á sveitarfélög. Slík breyting er ekki í samræmi við markmið samkomulagsins og skapar verulega óvissu um framkvæmd þjónustunnar.
Stjórn SSNV skorar á mennta- og barnamálaráðuneytið að endurskoða reglugerðina í samráði við sveitarfélög og standa við þær skuldbindingar sem ríkið tók á sig með samkomulagi aðila frá mars 2025.
Framkvæmdastjóra falið að senda bókunina á mennta- og barnamálaráðherra, þingmenn Norðvesturkjördæmis og framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Starfsmannamál
Farið var yfir málefni er varða starfsmannahald og önnur atriði sem tengjast starfsfólki SSNV. Sveinbjörg Rut Pétursdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Stjórn samþykkir að fela formanni að ganga til samninga við Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur um starf framkvæmdastjóra SSNV.
Framlögð mál til kynningar
a) Fundargerðir
Stjórn SASS, 5. júní 2026. Fundargerðin.
Stjórn stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál, 8. júní 2026. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28. maí 2026. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 9. júní 2026. Fundargerðin.
Stjórn SSS, 10. júní 2026. Fundargerðin.
b) Umsagnir
Drög að reglugerð um heilsugæslu. Mál nr. S-110/2026. Umsagnarfrestur er til og með 24. júlí 2026.
Sviðslistastefna 2026-2030. Mál nr. S-88/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026.
Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð. Mál nr. S-106/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026.
Hvítbók um byggðamál. Mál nr. S-104/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.
Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Mál nr. S-105/2026. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst 2026.
Skýrsla framkvæmdastjóra
Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.
Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.02.
Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550