Kynningarefni með Canva

 

Hvar finn ég góðar myndir á netinu?

 

Þetta er algeng spurning frá þeim sem eru að nýta sér samfélagsmiðla til að koma vöru eða þjónustu á framfæri. Vissulega má vinna myndir út um allt á netinu en hættan við þá leið er að höfundarréttur er ríkur og refsingar liggja við því að nota myndir í leyfisleysi. Til að komast hjá slíkum vandræðum borgar sig að finna myndir í skilgreindum myndabönkum. Til dæmis:

 

https://wunderstock.com/ 

https://www.splitshire.com/

https://www.pexels.com/

https://burst.shopify.com/ 

https://www.freepik.com/

https://www.freeimages.com/

https://kaboompics.com/

https://stocksnap.io/

https://thenounproject.com/

https://startupstockphotos.com/

https://pixabay.com/

https://nos.twnsnd.co/ Gamlar sögulegar ljósmyndir.

https://negativespace.co/

https://magdeleine.co/ Ein ný mynd á dag, hægt að leita eftir litum sem getur komið sé vel

https://www.lifeofpix.com/ Einnig myndbönd.

https://gratisography.com/

https://unsplash.com/

 

Ofangreindir myndabankar innihalda ókeypis myndir sem í flestum tilfellum má nota til að útbúa kynningarefni svo sem samfélagsmiðlapósta. Það er ráðlegt að skoða í öllum tilfellum vel notendaskilmála og gæta þess að geta ljósmyndarans þegar myndin er notuð eða hvaðan myndin er fengin ef þess er krafist.

 

Á þessum síðum ættu flestir að geta fundið myndir við hæfi sem t.d. má nota til að útbúa samfélagsmiðlapósta eins og sýnt er í kennslumyndbandi um notkun Canva kerfisins.

 

Einnig er vert að benda á myndabanka sem eru mjög stórir en kosta, annað hvort greitt pr. mynd eða keypt áskrift.

 

https://www.shutterstock.com  Einn stærsti myndabankinn. Góð leitarvirkni, hægt að leita eftir litum. Einnig myndbönd.

https://www.storyblocks.com Hægt að kaupa aðgang og innifalinn í honum eru ákveðinn hluti mynda. Tiltölulega ódýr banki og ágæt leitarvirkni. Einnig myndbönd.

 

PDF skjal um ýmsa kosti sem hægt er að nýta í markaðssetningu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.