Styrkþegar Uppbyggingarsjóðs - Gott að hafa í huga

SSNV vill minna styrkhafa Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra á nokkur atriði varðandi greiðslur styrkja og skýrsluskil.

Hægt er að óska eftir fyrstu greiðslu þegar undirbúningur verkefnis er hafinn. Sé styrkurinn 1.000.000 kr. eða lægri er hægt að fá 50% styrkupphæðarinnar greidd við upphaf verkefnis. Fyrir styrki sem eru hærri en 1.000.000 kr. er hægt að fá 30% greidd.

Til að fá fyrstu greiðslu er nóg að senda tölvupóst á starfsfólk SSNV og láta vita að undirbúningur verkefnisins sé hafinn og óska eftir fyrri/fyrstu greiðslu.

Þegar verkefni er lokið er gott að hafa í huga að samkvæmt úthlutunarreglum þarf að óska eftir lokagreiðslu innan þriggja mánaða frá verklokum. Skýrslum og fylgigögnum er skilað í nýja umsóknarkerfinu og má finna leiðbeiningar á heimasíðu SSNV.

Starfsfólk SSNV veitir að sjálfsögðu nánari upplýsingar og aðstoð ef spurningar vakna.