26.03.2026
Veiðihús rétt við Blönduós óska eftir að ráða starfsfólk til starfa við almenna gisti- og veitingaþjónustu í sumar.
Lesa meira
24.03.2026
Söfn, setur og sýningar í Húnaþingi vestra munu opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi næstkomandi sunnudag, 29. mars, sem er pálmasunnudagur.
Opnunartíma má sjá á myndinni. Öll áhugasöm um menningu svæðisins okkar eru hvött til að nýta sér þetta góða boð.
Lesa meira
24.03.2026
Fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 9:30–11:00 fer fram alþjóðleg vefstofa á Zoom um viðskiptamódel samfélagsdrifinna fyrirtækja í dreifbýli. Vefstofan fer fram á ensku og gæti höfðað til frumkvöðla, stuðningskerfis samfélagsfrumkvöðla, stefnumótenda og annarra sem hafa áhuga á samfélagslegri nýsköpun og þróun í dreifbýli.
Lesa meira
18.03.2026
Nú á dögunum stóð Eimur fyrir fræðsluferð til Írlands fyrir áhugasama aðila um tækifæri í sniglarækt. Fulltrúi SSNV, Magnús Barðdal, fór með í för til að kynna sér verkefnið og vera í stakk búinn til að styðja við áhugasama aðila með áætlunargerð og þróun verkefna ef vilji er til staðar að hefja slíka starfsemi á Norðurlandi.
Lesa meira
12.03.2026
Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna sem styðja við farsæld barna. Um er að ræða einsskiptisstyrki sem ætlað er að efla innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og menntastefnu til ársins 2030.
Lesa meira
12.03.2026
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa látið vinna samantekt um línustæði raflína, eignarrétt og endurgjald til landeigenda. Markmið skýrslunnar er að varpa ljósi á hvernig bætur fyrir lagningu raflína eru ákvarðaðar hér á landi og bera það saman við fyrirkomulag í nágrannalöndum Íslands.
Lesa meira