Fundargerð 142. fundar stjórnar SSNV, 13. ágúst 2026

Hér má nálgast fundargerð á pdf.

 

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Hvammstanga. Hófst fundurinn kl. 13:00. 

Mætt voru: Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Halldór Jón Sigurðsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.  

 

Dagskrá:  

 

  1. Starfsmannamál 

  1. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra 

  1. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra 

  1. Haustþing SSNV 

  1. Niðurstöður vinnustofunnar um græna iðngarða   

  1. 6 mánaða uppgjör 

  1. Framlögð mál til kynningar  

        a) Fundargerðir   

        b) Umsagnir 

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra 

 

 

Afgreiðslur 

  1. Starfsmannamál 

Starfsfólk SSNV kom til fundar og fór yfir helstu verkefni og ábyrgðarsvið hvers starfsmanns, ásamt stöðu verkefna og verkefnaálagi. Markmið kynningarinnar var að veita stjórn heildstæða yfirsýn yfir starfsemi samtakanna og skapa grundvöll fyrir umræðu um framtíðarskipulag. 

 

Stjórn þakkar starfsfólki fyrir greinargóða yfirferð. Stjórn ræddi í framhaldinu verkefni og framtíðarskipulag samtakanna með hliðsjón af þeirri yfirsýn sem fram kom. Stjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að auglýsa eftir stöðu atvinnuráðgjafa með áherslu á fjárfestingar.  

 

  1. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra 

Guðlaugur Skúlason og Berglind Björnsdóttir komu til fundar og fóru yfir komandi umsóknarferli Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra.   

 

Stjórn þakkar Guðlaugi og Berglindi fyrir góða yfirferð. 

  

  1. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra 

Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu mála varðandi fyrirhugaða yfirfærslu verkefna Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, þar á meðal fyrirhugaða fundi og önnur atriði sem tengjast framgangi málsins. Málið var lagt fyrir stjórn til kynningar og umræðu.   

 

Stjórn ræddi stöðu málsins og þær breytingar sem fyrirhuguð yfirfærsla kann að hafa í för með sér. Stjórn mun áfram fylgjast með framvindu málsins og þeim áhrifum sem breytingarnar kunna að hafa á sveitarfélögin á Norðurlandi vestra. 

 

  1. Haustþing SSNV 

Framkvæmdastjóri fór yfir undirbúning haustþings SSNV sem halda á 1. október í Húnaþingi vestra. 

 

Framkvæmdastjóra falið að hefja undirbúning þingsins í samræmi við samþykktir samtakanna. 

 

  1. Niðurstöður vinnustofunnar um græna iðngarða 

Niðurstöður vinnustofu um græna iðngarða, sem framkvæmdastjóri sat, lagðar fram til kynningar og umræðu.  

 

Stjórn telur mikilvægt að áfram verði unnið að því að kortleggja styrkleika, auðlindir, innviði og fjárfestingatækifæri á Norðurlandi vestra og að hagsmunir og tækifæri landshlutans verði sýnileg í þeirri vinnu sem framundan er á landsvísu. Stjórn felur framkvæmdastjóra að fylgja málinu eftir fyrir hönd SSNV. 

 

 

  1. 6 mánaða uppgjör 

Matthías Rúnarsson, bókari samtakanna, kom til fundar og fór yfir 6 mánaða uppgjör samtakanna. Rekstur er almennt skv. áætlun. 

 

Stjórn þakkar Matthíasi fyrir greinargóða yfirferð. 

  

  1. Framlögð mál til kynningar 

a) Fundargerðir

Stjórn SSNE, 30. júní 2026. Fundargerðin. 

Stjórn SSA, 4. júní 2026. Fundargerðin. 

 

 b) Umsagnir 

Sviðslistastefna 2026-2030. Mál nr. S-88/2026. Umsagnarfrestur er til og með 5. ágúst 2026. 

Hvítbók um byggðamál. Mál nr. S-104/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. 

Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi. Mál nr. S-105/2026. Umsagnarfrestur er til og með 21. ágúst 2026. 

Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar. Mál nr. S-138/2026. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. 

Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Mál nr. S-123/2026. Umsagnarfrestur er til og með 19. ágúst 2026. 

Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits. Mál nr. S-113/2026. Umsagnarfrestur er til og með 17. ágúst 2026. 

 

Umsögn SSNV um Sviðslistastefnu 2026-2030 samþykkt af stjórn og send inn í Samráðsgátt stjórnvalda. Afgreiðsla málsins er færð til bókar. 

Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að umsögnum um; Hvítbók um byggðamál, Forsamráð um efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi, Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar, Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits. 

 

 

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra 

Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. 

 

 

Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16.58.  

 

Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Jóhanna Ey Harðardóttir, Halldór Jón Sigurðsson, Davíð Birkir Tryggvason og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.