Rafrænn kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra

Kynningarfundur um allt sem þú þarft að vita áður en þú sækir um í Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra!

Starfsmenn SSNV verða með rafrænan kynningarfund í gegnum Zoom og á Facebook.
Farið verður yfir helstu úthlutunarreglur og leiðbeiningar um gerð umsókna.
Veittir eru styrkir í eftirfarandi þremur flokkum:
- Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
- Verkefnastyrkir á sviði menningar
- Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þriðjudaginn 1. nóvember 2022.