34. ársþing 2026

34. ársþing SSNV var haldið á Hótel Laugarbakka, Húnaþingi vestra, 8. apríl nk. Dagskrá hófst kl. 14:00 með þingsetningu.

Á ársþingi SSNV eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna en hafa þeir einir atkvæðisrétt sem til þess eru kjörnir. Ársþing er opið til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórum og starfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV og tengdra verkefna á Norðurlandi vestra. Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti. Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á ársþingi með heimild til að ávarpa þingið. Ársþing SSNV fer með æðsta vald í málefnum samtakanna.

 

Dagskrá

Þinggjörð

Skýrsla stjórnar

Tillaga um laun og þóknun til stjórnar og nefnda SSNV

Ályktun ársþings SSNV tillaga frá Húnabyggð

Ályktun ársþings - tillaga frá stjórn SSNV

Ársskýrsla SSNV 2025

Ársreikningur SSNV 2025