32. ársþing 2024

32. ársþing SSNV var haldið í félagsheimilinu á Blönduósi 11. apríl nk. Dagskrá hófst kl. 9:30 með þingsetningu og stóð til kl. 14:30.

Á ársþingi SSNV eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna en hafa þeir einir atkvæðisrétt sem til þess eru kjörnir. Ársþing er opið til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórum og starfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV og tengdra verkefna á Norðurlandi vestra. Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti. Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á ársþingi með heimild til að ávarpa þingið. Ársþing SSNV fer með æðsta vald í málefnum samtakanna.

 

Dagskrá

Þinggjörð

Tillaga um laun og þóknun til stjórnar og nefnda SSNV

Ársskýrsla SSNV 2023

Ársreikningur SSNV 2023

Samgöngu- og innviðaáætlun SSNV