Hlaðvarpið Fólkið á Norðurlandi vestra - Sandra Granquist

Nýr þáttur af hlaðvarpinu Fólkið á Norðurlandi vestra er kominn út. Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er Sandra Granquist. Sandra er doktor í vistfræði sela, deildarstjóri selarannsóknardeildar Selaseturs Íslands og sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. Sandra er frá Svíþjóð en flutti til Íslands fyrir 24 árum. Hún segir okkur frá starfinu, áhugamálinu sem hefur undið aðeins upp á sig og hvernig er að búa á Norðurlandi vestra. 

Árið 2019 var farið af stað með hlaðvarpsþættina Fólkið á Norðurlandi vestra. Framleiddir voru um 30 þættir sem vöktu mikla athygli og fengu góða hlustun. Við endurvekjum nú hlaðvarpið og stefnum á að birta þætti reglulega með viðtölum við áhugaverða einstaklinga á Norðurlandi vestra sem eru að sýsla við áhugaverða hluti. 

Þættirnir eru aðgengilegir á podbean, inn á helstu hlaðvarpsveitum og á heimasíðu SSNV.