Þrátt fyrir að hitastigið úti gefi okkur fáar vísbendingar þessa dagana þá segir dagatalið að það styttist í sumarið með öllum sínu fjölbreyttu viðburðum sem í boði eru hér í landshlutanum okkar. EN - alltof oft gerist það að viðburðir fara framhjá íbúum - einfaldlega vegna þess að þeir sáu t.d. ekki veggspjaldið, bæklinginn eða viðburðasíðu nágrannasveitarfélagsins.
Eitt af áhersluverkefnum SSNV á síðasta ári var að auka sýnileika viðburða á Norðurlandi vestra og bæta aðgengi íbúa landshlutans að upplýsingum um viðburði á svæðinu í gegnum einn vef. Markmiðið var að auka þátttöku í þeim viðburðum sem bjóðast og auka sýnileika þess sem í boði er í landshlutanum. Miðað var við að með auknum sýnileika viðburða aukist möguleikar íbúa landshlutans á að njóta þess fjölbreytta menningarframboðs sem býðst og viðburðahaldarar nytu einnig góðs af og gætu þá styrkt starfsemi sína enn frekar.
Í tengslum við þetta verkefni varð til viðburðadagatal Feykis, en það er síða sem sinnir einmitt því hlutverki - að auka sýnileika viðburða í landshlutanum. Á síðunni, sem finna má á upphafssíðu Feykis, er auðvelt aðgengi að skýrum upplýsingum um viðburði tengdum menningu, afþreyingu og mannlífi, en henni er ætlað að vera sameiginlegur upplýsingabanki fyrir allt sem er að gerast á Norðurlandi vestra – stórt sem smátt. Þar geta íbúar og gestir landshlutans leitað á einn stað eftir viðburðum, í stað þess til dæmis að þurfa að hafa aðgang að viðburðasíðum hvers sveitarfélags í fjórðungnum.
Nú þegar sumarið er framundan og dagskráin þétt um allan landshlutann er sérstaklega mikilvægt að viðburðahaldarar muni að senda inn upplýsingar um sína viðburði. Það eykur sýnileika, styrkir samfélagið í heild og gerir fleirum kleift að taka þátt í því sem í boði er.
Til að tryggja að upplýsingar berist sem víðast viljum við hvetja öll þau sem standa fyrir viðburðum á Norðurlandi vestra til að nýta viðburðasíðu Feykis.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550