Fyrirtækið Verk Lausn ehf. á Skagaströnd hefur hlotið viðurkenninguna Framúrskarandi verkefni fyrir árið 2025 fyrir uppbyggingu framleiðslu á nútímalegum einingahúsum.
Verkefnið er þegar komið vel af stað og vinnur nú að framleiðslu á 9 húsum fyrir Akureyrarbæ, þar sem fyrstu tvö húsin eru nú að verða fullkláruð.
Verkefnið byggir á því að nýta húsnæði fyrrum rækjuvinnslu til framleiðslu á fullbúnum húsum innandyra og svarar þannig vaxandi þörf fyrir hagkvæmt og aðgengilegt húsnæði.
Verk Lausn var stofnað árið 2021 með tvo starfsmenn en hefur vaxið hratt og eru nú 13 starfsmenn hjá fyrirtækinu og enn fleiri yfir sumartímann.
Þetta er skýrt dæmi um hvernig hægt er að efla fjölbreytni í atvinnulífinu með hugviti, nýsköpun og betri nýtingu innviða.
SSNV óskar Verk Lausn ehf. til hamingju með viðurkenninguna.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550