Málþing um stöðu og framtíð smáframleiðenda 18. apríl 2026 kl. 10:00 til 15:00 í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði
Hin mikla gróska, sem hefur verið í röðum smáframleiðenda undanfarin ár, ekki síst á landsbyggðinni, hefur þótt eftirtektarverð. Fjölmargir frumkvöðlar hafa byggt upp áhugaverða framleiðslu, sem að stærstum hluta tengist matvælum, en á heildina litið kennir ýmissa grasa. Eins og stundum vill verða hefur svona kraftmikil vegferð þurft að reka sig á ýmsa veggi í sínu rekstrarumhverfi og áskoranirnar af ýmsu tagi. En tækifærin eru líka mörg og fjölbreytileg. Með málþinginu langar okkur með góðum gestum að draga upp mynd af stöðunni, en ekki síður að horfa inn í framtíðina og hvaða forsendur séu nauðsynlegar fyrir áframhaldandi grósku.
Dagskrá:
Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig HÉR fyrir föstudaginn 17. apríl n.k.
Athugið að hægt er að bóka hótelgistingu í hjá Hótel Varmahlíð fyrir nóttin 17. til 18. apríl
- tveggja manna herbergi með morgunverði á 22,000 kr nóttin.
- einstaklingsherbergi með morgunverði á 15.500 kr nóttin.
Bókanir í tölvupósti til info@hotelvarmahlid.is
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550