Fundargerð úthlutunarnefndar 29. ágúst 2022

Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar.

 

30. fundur Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn mánudaginn 29. ágúst 2022, kl. 13:00. Fundurinn fór fram á Zoom.

Mætt til fundar:  Lárus Ægir Guðmundsson, formaður, Jóhanna Ey Harðardóttir, formaður fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar og Ragnhildur Haraldsdóttir, formaður fagráðs menningar. Einnig sátu fundinn Sveinbjörg Rut Pétursdóttir og Ástrós Elísdóttir, starfsmenn SSNV. Formaður nefndarinnar stýrði fundi.

 

Fyrir var tekið:

1. Drög að úthlutunarreglum fyrir árið 2023.

Fyrir fundinum lágu drög að úthlutunarreglum fyrir árið 2023. Lagt er til að úthlutunarreglur standi óbreyttar frá síðasta ári.

Reglurnar þurfa staðfestingu stjórnar SSNV áður en þær taka gildi.

 

2. Drög að matsblaði umsókna fyrir árið 2023.

Fyrir fundinum lágu drög að matsblaði vegna umsókna um styrk 2023. Drögin voru samþykkt óbreytt.

Matsblaðið þarf samþykki stjórnar SSNV áður en það tekur gildi.

 

3. Tímasetningar umsóknar- og úthlutunarferils vegna styrkveitinga f. 2023.

Samþykkt var að miða við eftirfarandi dagsetningar:

-            26. september 2022              - auglýst eftir umsóknum

-            1. nóvember 2022             - umsóknarfrestur rennur út

 

4. Næsti fundur úthlutunarnefndar.

Næsti fundur úthlutunarnefndar verður mánudaginn 7. nóvember kl. 13:00 á Skagaströnd.

 

Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 13:22.

 

Sveinbjörg Pétursdóttir

fundarritari