Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2026. Hægt er að sækja um atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyki, verkefnastyrki á menningarsviði og stofn- og rekstrarstyrki á menningarsviði.

Umsóknarfrestur er til kl. 12:00 miðvikudaginn 22.október nk. Hægt er að sækja um HÉR.

Á heimasíðu SSNV er að finna úthlutunarreglur, matsblað og ýmsar leiðbeiningar um gerð umsókna. Góð umsókn eykur möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðum svo mikilvægt er að vanda til verka. Starfsmenn eru alltaf reiðubúnir til að veita aðstoð.