Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Tónlistarsjóð og er umsóknarfrestur til 15. apríl kl. 15:00. Fyrir þau sem hyggjast sækja um býður Tónlistarmiðstöð jafnframt upp á umsóknarsmiðju þriðjudaginn 7. apríl kl. 15–18, þar sem umsækjendur geta unnið að umsóknum sínum í góðum félagsskap, skipst á hugmyndum og fengið betri innsýn í umsóknarferlið.
Tækifærið getur nýst tónlistarfólki, verkefnastjórum, hátíðahöldurum og öðrum sem standa að fjölbreyttu menningarstarfi á Norðurlandi vestra. Tónlistarsjóður er mikilvægur farvegur fyrir nýsköpun, tónsköpun, tónleikahald, útgáfu og þróun verkefna sem styrkja menningarlíf og skapandi atvinnugreinar, bæði í heimabyggð og víðar.
Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist, hljóðritagerð og þróunarstarf í íslenskum tónlistariðnaði, auk þess að styðja við kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun hér á landi og erlendis. Veittir eru styrkir í fimm flokkum: tónlistarstyrkir, flytjendastyrkir, viðskiptastyrkir, markaðsstyrkir og ferðastyrkir.
Umsóknarsmiðjan er hugsuð sem opið og hvetjandi vinnurými fyrir þau sem eru að undirbúa umsókn og getur því verið góður stuðningur fyrir þau sem vilja þróa tónlistarverkefni sín áfram.
Nánari upplýsingar um sjóðinn, umsóknargögn og skráningu í umsóknarsmiðju má nálgast á vef Tónlistarmiðstöðvar sem sinnir úthlutun úr Tónlistarsjóði fyrir hönd Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550