Tónlistarhátíðir á landsbyggðinni hvattar til að sækja um styrk

Hátíðapotturinn auglýsir eftir umsóknum – sérstaklega frá hátíðum á landsbyggðinni

Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við Íslandsstofu, kallar nú eftir umsóknum í Hátíðapottinn – stuðningsverkefni sem miðar að því að efla alþjóðlega kynningu íslenskra tónlistarhátíða með komu erlendra fjölmiðla til landsins. Sérstök áhersla er lögð á hátíðir utan höfuðborgarsvæðisins.

Hátíðastuðningurinn felur meðal annars í sér aðstoð við alþjóðleg almannatengsl, flug, gistingu og ferðir innanlands, sem og utanumhald um komu gesta. Markmiðið er að styrkja stöðu íslenskrar tónlistar á alþjóðavettvangi og efla tengsl við erlenda lykilaðila.

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má finna á vef Tónlistarmiðstöðvar.

Frekari upplýsingar veitir Árni Hjörvar Árnason, markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar, arni@icelandmusic.is).