Textílmiðstöðin hefur náð glæsilegum áfanga á samfélagsmiðlum og er nú orðin áhrifavaldur á Instagram með yfir 10.000 fylgjendur. Að því tilefni býður starfsfólk Textílmiðstöðvarinnar, öllum þeim sem vilja fagna með þeim, í heimsókn í TextílLabið að Þverbraut 1.
Labið verður opnað fyrir gesti og gangandi fimmtudaginn 5. febrúar klukkan fimm og boðið verður upp á kökur og góða samverustund. Allir eru hjartanlega velkomnir til að fagna þessum áfanga.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550