Styrkir til verkefna sem efla farsæld barna

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem stuðla að aukinni velferð og farsæld barna. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem miða að því að sporna gegn ofbeldi meðal barna, í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda í þessum málaflokki.

Styrkirnir eru ætlaðir fjölbreyttum verkefnum á borð við forvarnir, frístundastarf, ráðgjöf og annan stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Sveitarfélög eru hvött til að vinna að verkefnunum í samstarfi við aðra aðila, svo sem önnur sveitarfélög, stofnanir, félagasamtök og íþróttafélög. Heildarúthlutun styrkja getur numið allt að 495 milljónum króna.

Umsóknir skulu berast rafrænt gegnum „Mínar síður“ á vef Stjórnarráðsins fyrir 30. júní 2025. Úthlutun er fyrirhuguð í síðasta lagi í ágúst sama ár.

Frekari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknarferlið má nálgast á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins: Stjórnarráðið | Auglýst eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki í þágu farsældar barna eða með því að senda fyrirspurn á netfangið mrn@mrn.is.