Styrkir til verkefna í þágu farsældar barna

Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna sem styðja við farsæld barna. Um er að ræða einsskiptisstyrki sem ætlað er að efla innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og menntastefnu til ársins 2030.

Styrkirnir geta meðal annars farið til verkefna á sviði menntunar, frístundastarfs, forvarna, samfélagslegrar virkni og stuðnings við börn og fjölskyldur. Almennt er miðað við að styrkfjárhæðir séu allt að 3 milljónir króna, þó í undantekningartilvikum geti styrkir verið hærri.

Sótt er um rafrænt á Mínum síðum á vef Stjórnarráðsins undir mennta- og barnamálaráðuneytinu og þurfa umsóknir að innihalda upplýsingar um verkefnið og framkvæmd þess.

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026 og gert er ráð fyrir að úthlutun liggi fyrir eigi síðar en 15. maí 2026.

Sjá nánar hér