SSNV og SSNE hafa hlotið 500.000 króna styrk úr Örvar – styrkjum til verkefna og viðburða á málefnasviðum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Styrkurinn mun nýtast til undirbúnings og framkvæmdar á Nýsköpunar- og fjárfestadögum á Norðurlandi – sameiginlegu verkefni sem miðar að því að efla nýsköpun og styðja við frumkvöðla og sprotafyrirtæki á svæðinu.
Nýsköpunar- og fjárfestingadagar Norðurlands verður vettvangur þar sem frumkvöðlar og fjárfestar koma saman, tengjast og miðla hugmyndum. Frumkvöðlar af öllu Norðurlandi fá tækifæri til að kynna verkefni sín fyrir fjárfestum og efla tengslanet sitt. Á dagskrá verða fjölbreyttir fræðsluviðburðir þar sem lögð verður áhersla á árangursríkar leiðir til fjármögnunar.
Alls bárust 48 umsóknir um styrki til 44 verkefna og hefur Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ákveðið að veita styrki úr Örvari til 16 fjölbreyttra verkefna að þessu sinni að upphæð 19,34 milljónir króna. Hámarksupphæð styrks sem hvert verkefni getur hlotið er 1,5 milljónir króna.
Með verkefninu vilja SSNV og SSNE skapa frjóan jarðveg fyrir nýsköpun á Norðurlandi, tengja saman hugmyndir og fjármagn og styðja við þróttmikið atvinnulíf á svæðinu.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550