Sinfó í sundi

Sinfóníuhljómsveit Íslands á 75 ára afmæli í ár og hefur í tilefni af afmælinu boðið upp á fjölmarga viðburði það sem af er ári.

Næst á dagskrá hjá sveitinni eru tónleikarnir Klassíkin okkar. Tónleikunum verður ekki aðeins sjónvarpað í beinni útsendingu heldur verða þeir einnig í boði í fjölmörgum sundlaugum landsins undir heitinu Sinfó í sundi. 

Tónleikarnir verða haldnir föstudaginn 29. ágúst og hefjast kl. 20.

Sundlaugarnar á Hvammstanga, Blönduósi og í Skagafirði munu bjóða gestum sínum að hlusta á tónleikana á meðan sundferðinni stendur. 

Vonandi munu sem flestir taka þátt í þessari skemmtilegu tónlistarupplifun sem þarna verður boðið upp á.