"Samtal og samfélag - íslenska í daglegu lífi" hlýtur styrk

Mennta- og barnamálaráðherra hefur úthlutað styrkjum til að efla samstarf og nýsköpun í íslensku sem annað tungumál. Alls var tæplega 200 milljónum króna úthlutað til 17 verkefna sem miða að því að bæta aðgengi innflytjenda að íslenskunámi og styðja við virka þátttöku þeirra í samfélaginu.

Meðal styrkþega er verkefnið „Samtal og samfélag – íslenska í daglegu lífi“, sem Farskólinn – Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra stendur að í samstarfi við stéttarfélagið Ölduna. Verkefnið hlaut 6.000.000 króna styrk. 

Úthlutunin byggir á stefnu stjórnvalda um að innflytjendur fái raunhæf tækifæri til að læra íslensku og taka virkan þátt í samfélaginu, í samræmi við menntastefnu 2030 og aðgerðaáætlun um íslenska tungu fyrir árin 2024–2026. Lögð var sérstök áhersla á samstarf ólíkra aðila og nýjar leiðir í kennslu og miðlun íslensku.

Nánar um verkefnin sem fengu styrk inn á heimasíðu stjórnarráðsins.