Áhugafólk um nýsköpun, sjálfbærni og framtíð landbúnaðar er hvatt til að kynna sér opið vefþing um orkuskipti í landbúnaði sem fram fer 9. apríl kl. 13:00–15:15. Að vefþinginu standa Eimur og Orkídea í samstarfi við Evrópuverkefnin RECET og Value4Farm.
Á þinginu verður meðal annars fjallað um rafmagns- og metanvæðingu landbúnaðartækja, nýtingu metans sem orkugjafa og raunhæf tækifæri til aukins orkusjálfstæðis í landbúnaði. Innlendir og erlendir sérfræðingar deila þar þekkingu og reynslu, en hluti dagskrárinnar fer fram á ensku.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Eims. Hér er hægt að skrá sig, þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550