Opið kall til listafólks á Norðurlandi vestra - Open Call for Artists in Northwest Iceland

Undirbúningur Skúnaskralls, barnamenningarhátíðar á Norðurlandi vestra, er hafinn! 

Hátíðin mun fara fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 og þema hátíðarinnar er „Öll saman“. 

Þemað hefur víða skírskotun til íbúa landshlutans, en á hátíðinni verður lögð áhersla á menningartengda samvinnu og samveru og að þátttaka standi öllum börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra til boða. 

Óskað er eftir samstarfi við listafólk búsett í landshlutanum til að bjóða upp á listar- og menningarviðburði og/eða vinnustofur fyrir börn og ungmenni á hátíðinni. 

Mikilvægt er að þau sem sækja um hafi reynslu af því að vinna með börnum og ungmennum og fyrir þennan aldurshóp. 

Umsækjendur eru beðnir um að senda inn vel formaða hugmynd að verkefni, þar sem tilgreina skal: 

  • Aldur þátttakenda 
  • Staðsetningu/staðsetningar 
  • Fjölda barna/ungmenna í hverju verkefni 
  • Lengd verkefnis 
  • Allt annað sem skiptir verkefnið máli. 

Miðað er við taxta Listar fyrir alla.

Tekið skal fram að við val á verkefnum verður tekið tillit til aldursdreifingar, dreifingar milli sveitarfélaga og að framboð listgreina verði sem fjölbreyttast. Fjöldi verkefna sem valin verða, ræðst af endanlegu fjármagni sem hátíðin fær.  

Umsóknum skal skila til Berglindar Björnsdóttur eigi síðar en 1. júní. Berglind svarar einnig öllum fyrirspurnum varðandi verkefnið; berglind@ssnv.is   

Vilt þú taka þátt eða veist af frábærri hugmynd? Sendu upplýsingar fyrir 1. júní!  

Endilega deilið áfram. 

 

Open Call for Artists in Northwest Iceland 

Preparations for Skúnaskrall, a children's culture festival in Northwest Iceland, have begun! 

The festival will take place from October 21st to November 4th 2026, and the theme of the festival is 'All Together.' 
 
The theme broadly references the region's residents, and the festival will emphasize culturally related cooperation and togetherness, and participation being available to all children, youth, and their families. 

Collaboration with artists based in the region is hereby requested to offer arts and cultural events and/or workshops for children and youth at the festival. 
It is important that applicants have experience working with children and young people in this age group. 

Applicants are asked to submit a well-prepared project proposal, specifying: 

  • Age of participants 
  • Location(s) 
  • Number of children/youths in each project 
  • Duration of the project 
  • Any other information relevant to the project. 

Payment is based on the List fyrir alla rate.

When selecting projects, age distribution, distribution between municipalities and the art forms offered are as diverse as possible will be considered.  

The number of projects that will be selected will depend on the final funding allocated to the festival.  

Applications should be submitted to Berglind Björnsdóttir no later than June 1st. Berglind will also answer all questions regarding the project; berglind@ssnv.is  

Do you want to participate or know of a great idea? Send information by June 1st      

Feel free to share.