Opið fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Myndasmiður: Róbert Daníel
Myndasmiður: Róbert Daníel

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð C.1 Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða. Veitt verða framlög fyrir allt að 170 milljónum kr. fyrir árið 2026.

Landshlutasamtök sveitarfélaga geta í samstarfi við haghafa í hverjum landshluta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf með gerð viðaukasamninga við sóknaráætlanir viðkomandi landshluta um tiltekin verkefni eftir forgangsröðun heimafólks.

Umsóknarfrestur er til miðnættis fimmtudagsins 22. janúar 2026. Umsóknir skulu fara í gegnum umsóknargátt Byggðastofnunar - allar upplýsingar má finna á vef Byggðastofnunar.