Opið er fyrir umsóknir í Matvælasjóð til og með 27. febrúar 2026.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styðja við þróun og nýsköpun í framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er lögð á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og aukna samkeppnishæfni íslenskra matvæla. Sjóðurinn getur jafnframt stutt vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum og fylgir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Styrkir eru veittir í fjórum flokkum: Bára, Kelda, Afurð og Fjársjóður, og ná til verkefna á öllum stigum – frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.
Handbók Matvælasjóðs má nálgast á heimasíðu sjóðsins. Umsóknir eru sendar í gegnum umsóknarkerfið afurd.is.
Fyrirspurnir sendist á matvaelasjodur@atrn.is
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550