Opið er fyrir umsóknir í loftslagssjóð til 15. júní

Loftslagssjóður er sérstakur sjóður sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.

Styrkir til nýsköpunarverkefna eru ætlaðir m.a. til þess að styrkja rannsóknir og þróunarstarf í tengslum við aðlögun og innleiðingu á nýjum loftslagsvænum tæknilausnum og hönnun. Áhersla er lögð á nýsköpunarverkefni sem skila samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.

Einnig er áhersla verður lögð á kynningar- og fræðsluverkefni sem nýta niðurstöður nýjustu skýrslu frá IPCC (AR6), Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna, kynna þær og túlka í samhengi við íslenskt samfélag, og eru til þess fallin að virkja almenning og atvinnulíf til aðgerða.

Hér má finna handbók og reglur sjóðsins.

Við mælum með að umsækendur lesi yfir bæði handbókina og reglurnar áður en sótt er um og gefi sér góðan tíma í að skrifa umsóknina. Góð umsókn eykur líkur á styrk.

Við höfum brennandi áhuga á loftsslagsmálum og aðstoðum einstaklinga og fyrirtæki við umsóknarskrif.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef þú ert með hugmynd sem þú ert að velta fyrir þér hvort eigi erindi í þennan sjóð. Hægt er að hafa samband við Ólöfu, atvinnuráðgjafi á sviði nýsköpunar (olof@ssnv.is)

Hægt er að lesa meira um sjóðinn inná heimasíðu Rannís