Í vikubyrjun var tilkynnt um úthlutun úr Lóu – styrkjum til nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni. Í ár var áhersla lögð á að styrkja verkefni sem fela í sér hagnýtingu stafrænna lausna, þróun og nýtingu tæknilausna í heilbrigðismálum og verkefni sem stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda eða afurða á nýskapandi hátt. Alls fengu 21 verkefni styrk að þessu sinni en 97 umsóknir bárust sjóðnum í ár.
Tvö nýsköpunarverkefni á Norðurlandi vestra hlutu samtals 7.850.000 kr. styrk að þessu sinni, að auki eru aðilar í landshlutanum í samstarfi um þrjú verkefni sem hlutu styrk upp á samtals 14.410.000 kr.
Verkefnin á Norðurlandi vestra sem hlutu styrk eru:
Alor ehf. með verkefnið Sveitaorka - Matskerfi fyrir sjálfbæra orkuöflun bænda. Markmið verkefnisins er að þróa straumlínulagað matskerfi sem metur hagkvæmni þess að bændur framleiði eigin orku og geymi hana á rafhlöðum. Í kerfinu verður lagt mat á hagkvæmni framleiðslu sólarorku með sólarsellum og vindorku með svokölluðum vindstaurum auk geymslu rafmagns á rafhlöðum út frá nákvæmum staðsetningum og búrekstri.
KIDKA ehf. með verkefnið ReCover. ReCover er nýstáleg endurunnin prjónavörulína frá KIDKA, framleidd af IINOUIIO. Með því að endurnýta afskurð og ullarleifar úr eigin prjónavöruframleiðslu verður búið til nýtt garn sem síðan er ofið í teppi, ábreiður og efni fyrir ýmis verkefni. Þessi sjálfbæra nálgun dregur úr sóun og skapar einstakar, umhverfisvænar vörur.
Samstarfsverkefnin sem tengjast okkar landshluta eru eins og áður sagði þrjú.
Eimur með verkefnið Sniglarækt, sjálfbær nýting glatvarma. Verkefnið felst í að kynna sniglarækt sem sjálfbæra hliðarbúgrein fyrir bændur, byggða á nýtingu glatvarma úr jarðhitavatni. Verkefnið felur í sér fræðsluherferð með áherslu á að skapa verðmæti úr vannýttum auðlindum, bæta nýtingu hliðarstrauma og efla atvinnulíf með nýsköpun í matvælaframleiðslu.
Samtök þekkingarsetra með verkefnið Gervigreind og nýsköpun. Verkefnið er samstarf KPMG, Iceland Innovation Week og Samtaka þekkingasetra um að efla nýsköpun og stafræna hæfni á landsbyggðinni með hringferð um landið. Í gagnvirkum vinnustofum verður áhersla á hagnýtingu gervigreindar, skapandi hugsun og frumkvöðlastarfsemi, til að styrkja samkeppnishæfni, verðmætasköpun og auka sjálfstraust þátttakenda við eigin þróunarverkefni.
Að auki fékkst styrkur fyrir viðskiptahraðlinum Startup Landið sem er samstarfsvekefni allra landshlutasamtakanna og er SSNV þátttakandi í því. Viðskiptahraðallinn byrjar í haust og munu koma nánari upplýsingar á næstu dögum.
Við óskum öllum styrkhöfum úr Lóu sjóðnum innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þessum spennandi verkefnum raungerast.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550