Nýr leiðarvísir og Loftslagsatlas styðja sveitarfélög í aðlögun að loftslagsbreytingum

Á málþingi sem haldið var í Hofi á Akureyri í gær var því fagnað að nýr leiðarvísir fyrir sveitarfélög um aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga er nú tilbúinn og aðgengilegur. 

Þessi fyrsta útgáfa leiðarvísisins er afrakstur aðgerðar C.10 í núgildandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036. Aðgerðin var samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnunar og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Markmið leiðarvísisins er að styðja sveitarfélög við mótun og innleiðingu aðgerða til aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga. Leiðarvísirinn sameinar einföld skref og verkfæri sem gera sveitarfélögum kleift að hefja vinnuna óháð stærð, umfangi eða sérhæfðri þekkingu.

Veðurstofa Íslands kynnti einnig Loftslagsatlas Íslands en hann nýtist sveitarfélögum sem mikilvægt verkfæri við ákvarðanatöku, ekki síst í tengslum við skipulagsaðgerðir og uppbyggingu innviða. Atlasinn veitir gagnreyndar og aðgengilegar upplýsingar um líkleg áhrif loftslagsbreytinga, svo sem breytingar á úrkomu, flóðahættu og sjávarstöðu, og styður þannig við upplýstar og framsýnar ákvarðanir.

 

Þá voru einnig kynnt góð dæmi úr starfi sveitarfélaga. Grundarfjarðarbær kynnti reynslu sína af blágrænum ofanvatnslausnum, þar sem áhersla er lögð á sjálfbæra meðhöndlun ofanvatns með náttúrulegum lausnum sem draga úr álagi á fráveitukerfi og auka gæði nærumhverfis.

Þá hvatti fulltrúi frá Landi og skógi sveitarfélög til að setja náttúrumiðaðar lausnir í forgang, svo sem vernd, endurheimt vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu, sem lykilþátt í aðlögun að loftslagsbreytingum. Jafnframt kynnti fulltrúi Skipulagsstofnunar leiðbeiningar um loftslagsmiðað skipulag en slíkt skipulag getur farið vel saman við önnur samfélagsleg markmið þegar unnið er að þróun byggðar, svo sem um heilsu og vellíðan íbúa, grænna umhverfi, fjölbreytt og lifandi bæjarrými og blómlegt mannlíf.

Leiðarvísirinn, Loftslagsatlasinn og þau dæmi sem kynnt voru á málþinginu undirstrika mikilvægi þess að sveitarfélög hafi aðgang að hagnýtum verkfærum og þekkingu til að styrkja viðnámsþrótt byggða og stuðla að sjálfbærri þróun til framtíðar.

Aðlögun hefst með góðum gögnum - árangur næst með góðum ákvörðunum og aðgerðum.