Ný stefna um Saman gegn sóun í bígerð

Umhverfisstofnun hefur verið falið að endurskoða stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að fá innsýn í sjónarmið fólks, fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana um land allt. Umhverfisstofnun er með opna fundi í apríl á AkureyriÍsafirði og Egilsstöðum þar sem þátttakendur fá fræðslu um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og færi á að koma með tillögur að aðgerðum. Við hvetjum þig til að mæta. Frítt inn og léttar veitingar! 

Skráning er nauðsynleg, bæði fyrir staðfund og streymi - sjá hér.

 

HVAÐ ERU ÚRGANGSFORVARNIR?

• Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli?
• Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur?
• Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun?
• Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?

Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun.

FYRIR HVER?

• Öll!
• Starfsfólk fyrirtækja
• Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana
• Nemendur
• Almenning

AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?

• Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda og koma sjónarmiðum þínum eða þíns vinnustaðar á framfæri
• Fræðsla um hringrásarhagkerfið
• Innblástur frá fyrirtækjum á svæðinu
• Tækifæri til að spyrja sérfræðinga spurninga
• Tækifæri til að ræða við fólk og fyrirtæki af svæðinu um þessi mál