Verkefnið Þurrlýsi bar sigur úr býtum í nýsköpunarkeppninni; Norðansprotinn 2026. Lokaviðburður Norðansprotans 2026 fór fram 22. apríl í Messanum í Drift á Akureyri.
Alls voru sjö verkefni valin til þátttöku í úrslitunum og kynntu frumkvöðlar hugmyndir sínar fyrir dómnefnd og gestum. Að loknum kynningum og mati dómnefndar var það verkefnið Þurrlýsi sem þótti skara fram úr og hlaut titilinn Norðansprotinn 2026.
Sem sigurvegari hlaut verkefnið 1 milljón króna styrk frá Landvættum slhf., fjárfestingasjóði í rekstri Axum verðbréfa.
Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri Axum verðbréfa og fulltrúi í dómnefnd, tilkynnti niðurstöðuna. Í umsögn dómnefndar kom fram að verkefnin hefðu verið fjölbreytt og metnaðarfull en að sigurverkefnið bæri með sér sérstaklega mikla möguleika til framtíðar. Með réttri aðstoð og áframhaldandi þróun gæti það orðið grunnur að verðmætri starfsemi, aukinni þekkingarsköpun og nýjum atvinnutækifærum. Þá var einnig bent á að að baki verkefninu stæði öflugur frumkvöðull með sterkan bakgrunn.
Þurrlýsi snýr að þróun nýrrar framleiðsluaðferðar fyrir lýsi með það að markmiði að auka neyslu þess, sérstaklega meðal yngri kynslóða. Með svokölluðu þurrduftslýsi eru olíur lýsisins hjúpaðar í vatnsleysanlegum ögnum sem síðan eru þurrkaðar. Aðferðin gerir kleift að fela bragð lýsisins á sama tíma og notagildi þess eykst verulega.
Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni sem hefur það að markmiði að draga fram og styðja við efnilegar hugmyndir á frumstigi á Norðurlandi. Alls bárust 41 umsókn í keppnina í ár og endurspegluðu verkefnin fjölbreytileika og kraft í nýsköpun á svæðinu.
Lokaviðburðurinn var opinn almenningi og vakti töluverðan áhuga. Keppnin er hluti af víðtæku samstarfi um eflingu nýsköpunar á Norðurlandi og veitir frumkvöðlum mikilvægan vettvang til að kynna hugmyndir sínar og þróa þær áfram.
Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA og Hraðsins, með stuðningi frá Landvættum fjárfestingasjóði.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550