Norðanpaunk hefur hlotið viðurkenninguna Framúrskarandi verkefni SSNV fyrir árið 2025 fyrir framlag sitt til menningar og tónlistarlífs á landsbyggðinni.
Hátíðin er árlegt ættarmót paunkara á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að skapa vettvang fyrir hljómsveitir sem eru óhefðbundnar, tilraunakenndar eða eiga erfitt með að finna sér stað á hefðbundnum tónleikavettvangi.
Norðanpaunk leggur sérstaka áherslu á að styðja við ungar og upprennandi íslenskar hljómsveitir og veita þeim tækifæri til að koma fram og þróa sitt listform. Með þátttöku valinna erlendra gesta skapast jafnframt dýrmæt tengsl og aukinn sýnileiki á alþjóðavettvangi. Auðvelt er að fullyrða að hátíðin hafi á undanförnum árum fest sig í sessi sem einstakur og öflugur menningarviðburður í landshlutanum, en yfir verslunarmannahelgina breytist Laugarbakki í samfélag þar sem listafólk og aðrir þátttakendur hátíðarinnar sameinast í að deila og njóta jaðartónlistar.
Hátíðin hefur hlotið athygli utan landshlutans og var t.a.m. í ár einn fjögurra viðburða sem fengu tilnefningu til verðlauna fyrir besta tónlistarviðburðinn hjá The Reykjavik Grapevine. Þrátt fyrir að hneppa ekki hnossið var tilnefningin mikil viðurkenning fyrir skipuleggjendur hátíðarinnar og má reikna með að hún hafi aukið sýnileika Norðanpaunks til muna.
Norðanpaunk er skýrt dæmi um hvernig hægt er að efla skapandi greinar og menningarlegt fjölbreytileika með frumkvæði, eldmóði og sterku grasrótarstarfi.
SSNV óskar aðstandendum Norðanpaunks til hamingju með viðurkenninguna.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550