Niðurstöður Fyrirtækjakönnunar landshlutanna 2025 liggja nú fyrir

Ný fyrirtækjakönnun landshlutanna 2025 er komin út. Könnunin var framkvæmd á tímabilinu apríl til október 2025 og tóku 2.165 fyrirtæki af öllu landinu þátt. Könnunin var síðast gerð árið 2022 og að þessu sinni var svörun frá fyrirtækjum á Norðurlandi vestra meiri en áður. 

Niðurstöður könnunarinnar sýna að íslensk fyrirtæki horfa fram á hægari vöxt en áður, með aukinni varfærni í ráðningum og fjárfestingum. Á sama tíma sjá fyrirtæki áfram tækifæri í auknu samstarfi, nýjum markaðssvæðum og nýtingu nýrrar tækni.

Meðal þeirra þátta sem fram koma eru að fyrirtæki meta nettengingar og farsímasamband sem þá þætti sem styðja best við rekstur, á meðan vegakerfið og sumir opinberir þættir fá lakari einkunn. Fyrirtæki sjá aukið samstarf og ný markaðssvæði sem helstu tækifæri til vaxtar. Markaðssetning, vöruþróun og stækkun eru einnig nefnd sem mikilvæg sóknarfæri, en meðal stærstu hindrana sem nefndar eru er skortur á fjármagni, tíma og starfsfólki. Opinberir þættir á borð við regluverk, skatta og stjórnsýslu eru einnig taldir hafa veruleg áhrif.

Samantekt á niðurstöðum má finna hér.