Málþing fyrir fyrirtæki og fólk í ferðaþjónustu

Ferðaþjónusta á Íslandi byggir að stærstum hluta á þeim áhuga, sem að ferðamenn hafa á íslenskri náttúru. Þekkingarleysi ferðamanna á hættum, sem að geta steðjað, hefur þó stundum leitt til alvarlegra atvika. Einnig er hluti afþreyingar, sem boðið er upp á, byggður á því að njóta náttúrunnar við krefjandi aðstæður, þar sem að hætta getur skapast. Hættan getur verið af ólíkum toga en meginviðfangsefnið er ávallt það sama: Hvaða aðferðum getum við beitt til þess að tryggja, af fremsta megni, öryggi ferðamanna við krefjandi aðstæður?

Dagskrá:

  • 10:05 Garðar Hrafn Sigurjónsson, AIMG
    – Krefjandi aðstæður / helstu áskoranir
  • 10:15 Róbert Halldórsson, AIMG
    – Menntun og þjálfun
  • 10:25 Birna María Þorbjörnsdóttir, Safetravel
    – Forvarnir og viðbrögð
  • 10:40 Flóki Ásgeirsson, lögmaður MAGNA
    - Túlkun almannaréttar
  • 10:55 Björn Ingi Jónsson, Lögreglan
    – Heimildir og verkferlar
  • 11:10 Vatnajökulsþjóðgarður
    – Atvinnutengd starfsemi: Reglur og viðmið
  • 11:30 Íris Ragnarsdóttir Pedersen, AIMG
    – Framtíðin
  • 11:40 Fyrirspurnir

Skráning og nánari upplýsingar má finna hér