Nemendur í Viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum standa fyrir málþingi þriðjudaginn 17. mars kl. 13:00-16:00, þar sem fjallað verður um samfélagsleg áhrif viðburða.
Á málþinginu verður meðal annars rætt um öryggismál viðburða og mikilvægi þeirra fyrir samfélög og efnahagslíf. Auk þess verður fjallað um sjálfbærni í tengslum í viðburðahald og sértækan viðburð, Landsmót hestamanna, sem fer fram á Hólum næsta sumar.
Fyrirlesarar koma víða að og þar á meðal eru danskir sérfræðingar í sjálfbærni viðburða.
Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis. Boðið verður upp á beint streymi fyrir þá sem eiga ekki heimangengt.
Nánari upplýsingar og skráningu má finna hér á vefsíðu viðburðarins.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550