Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands. Keppnin fer fram dagana 15.-22. apríl og lýkur með úrslitum sem haldin verða í Messanum í Drift EA. Landvættir slhf., fjárfestingasjóður í rekstri Axum verðbréfa hf. veitir verðlaunafé upp á 1.000.000 kr.
Norðansprotinn er hluti af nýsköpunarferðalagi Norðurlands sem er ætlað að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndarstigi að fjárfestingu.
Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Landvættum fjárfestingasjóði.
Fyrirkomulag
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550