Síðastliðið sumar voru stutt myndbönd tekin upp í öllum sveitarfélögum landshlutans þar sem íbúar voru spurðir að því hvað þeim fyndist best við Norðurland vestra.
Hugmyndin var að beina athygli íbúa að jákvæðum þáttum þess að búa í landshlutanum og auka jákvæðni og bjartsýni - en það er einmitt einn lykiláhersluþáttur Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2025-2029.
Í stuttu máli sagt má segja að útkoman hafi sýnt að íbúum þykir vænt um heimkynni sín og sjái augljósa kosti við búsetuval sitt.
Myndböndunum, sem unnin voru af Skotta Film fyrir SSNV, verður dreift á miðlum samtakanna, bæði heimasíðu og samfélagsmiðlum næstu vikurnar.
Fylgist því vel með.
Færum við öllum viðmælendum bestu þakkir fyrir þátttökuna.