Fundargerð úthlutunarnefndar 30. nóvember 2022

Hér má nálgast pdf útgáfu fundargerðarinnar.

 

32. fundur úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra, haldinn miðvikudaginn 30. nóvember 2022, kl. 13:00, í gegnum fjarfundabúnaðinn Teams.

Mætt til fundar:  Ragnhildur Haraldsdóttir, formaður, Elín Lilja Gunnarsdóttir, formaður fagráðs menningar og Hildur Þóra Magnúsdóttir, formaður fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar.

Einnig sátu fundinn starfsmenn SSNV, Ástrós Elísdóttir og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir. Formaður nefndarinnar stýrði fundi.

 

Dagskrá:

1. Bréf framkvæmdastjóra SSNV sent til formanns úthlutunarnefndar 29. nóvember 2022, svohljóðandi:

 

„Í fjárhagsáætlun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) fyrir árið 2023 sem samþykkt var á haustþingi samtakanna þann 21. október 2022 er gert ráð fyrir að styrkirUppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra á árinu 2023 verði:

 

Til menningarmála                                  36.000.000 kr.

Til atvinnuþróunar og nýsköpunar           34.000.000 kr.

 

Að auki eru til ráðstöfunar fjármunir vegna styrkja sem hafa verið lækkaðir, felldir niður eða afþakkaðir af styrkþega. Þeir fjármunir skiptast þannig:

 

Til menningarmála                                  5.310.000 kr.

Til atvinnuþróunar og nýsköpunar           6.075.259 kr.

 

Samtals eru því til úthlutunar úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra í úthlutun með umsóknarfresti til 1. nóvember 2022:

 

Til menningarmála                                    41.310.000 kr.

Til atvinnuþróunar og nýsköpunar         40.075.259 kr.

                                              

                 Samtals til úthlutunar              81.385.259 kr.

           

Óskað er eftir því að innihald þessa bréfs verði bókað í fundargerð úthlutunarnefndarUppbyggingarsjóðs.

Komi til þess að ekki verði öllum fjármunum úthlutað mun stjórn SSNV taka ákvörðun umráðstöfun eftirstöðva.

 

2.      Vanhæfi nefndarmanna við afgreiðslu umsókna í Uppbyggingarsjóð.

Nefndarmaður                                         Umsókn nr.

Elín Lilja Gunnarsdóttir                          23066

Sá nefndarmaður, sem var vanhæfur, vék af fundi á meðan viðkomandi umsókn var rædd og afgreidd.

 

3.      Fundargerðir fagráðs menningar

Fundargerðir fagráðs til kynningar.

 

4.      Tillaga fagráðs menningar um styrki á sviði menningar - afgreiðsla

Fyrir fundinum lá tillaga fagráðs menningar, frá 24. nóv. sl., um úthlutun styrkja. Nefndin fór yfir tillögurnar og ræddi þær.

Samþykkt að 12 umsóknir fái stofn- og rekstrarstyrk alls að upphæð 16.000.000 kr.

Samþykkt að 34 umsóknir fái verkefnastyrk alls að upphæð 25.310.000 kr.

Sjá fylgiskjal: „Fagráð MENN – úthlutun 2023“.

 

5.      Fundargerðir fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar

Fundargerðir fagráðs til kynningar.

 

6.      Tillaga fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar um styrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar - afgreiðsla

Fyrir fundinum lá tillaga fagráðs atvinnuþróunar og nýsköpunar, frá 24. nóv. sl., um úthlutun styrkja. Nefndin fór yfir tillögurnar og ræddi þær. Samþykkt að 31 umsókn fái styrk alls að upphæð 39.942.030 kr.

Sjá fylgiskjal: „Fagráð AÞN – úthlutun 2023“.

 

7.      Svarbréf til umsækjenda um styrk

Fyrir fundinum lágu drög að svarbréfum til umsækjenda. Ekki voru gerðar athugasemdir við drögin.

 

8.      Úthlutunarhátíð

Gert er ráð fyrir að svör verði send til umsækjenda í tölvupósti fimmtudaginn 1. desember nk. og að úthlutunarhátíð verði í Austur-Húnavatnssýslu fimmtudaginn 19. janúar 2023, kl. 17:00.

 

9.      Umsóknar- og úthlutunarferli - athugasemdir

Nokkrar athugasemdir komu frá fagráði atvinnuþróunar og nýsköpunar. Óskað er eftir að fagráðin taki málin upp á fundi í janúar eða febrúar 2023, til athugunar fyrir næsta umsóknar- og úthlutunarferli.

 

10.   Könnun meðal umsækjenda – niðurstöður

Í heild voru niðurstöðurnar mjög jákvæðar, almenn ánægja með úthlutunarferlið og þjónustu ráðgjafa SSNV.

 

11.   Önnur mál

Engin önnur mál komu fram.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð upplesin og samþykkt, fundi slitið kl. 14:50.

 

Ástrós Elísdóttir, fundarritari