Hér má nálgast fundargerð á pdf.
Miðvikudaginn 3. júní 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Hvammstanga. Hófst fundurinn kl. 9:00.
Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð. Halldór Gunnar Ólafsson tók þátt á Teams.
Formaður setti fund og óskaði eftir að taka á dagskrá sem 10. dagskrárlið bókun vegna erindis um fyrirhugaðar breytingar á lögregluembættum. Samþykkt samhljóða
Dagskrá:
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra
Ársfjórðungsuppgjör
Kjörnefnd SSNV
Auka ársþing SSNV
Starfsmannamál
Skemmtiferðaskip
Ársreikningur Markaðsstofu Norðurlands
Fundargerðir framkvæmdahóps Farsældarráðs
Skýrsla um starf Flugklasans
Bókun stjórnar vegna breytinga á lögregluembættum
Framlögð mál til kynningar
a) Fundargerðir
b) Umsagnir
Skýrsla framkvæmdastjóra
Afgreiðslur
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra
Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra kemur til fundar og ræðir framtíð og stöðu heilbrigðiseftirlitsins í ljósi fyrirhugaðra breytinga og tilfærslu á verkefnum til ríkisins.
Stjórn þakkar Sigríði fyrir greinargóða yfirferð. Ljóst er að mikil óvissa ríkir um verkefni Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, hvaða verkefni verða færð til ríkis og hvaða verkefni verða eftir hjá sveitarfélögunum við þá breytingu sem fyrirhuguð er á starfsemi þeirra skv. fyrirliggjandi frumvarpi um einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits), mál nr. 582/2026. Ljóst er að fyrirhuguð breyting mun hafa mikil áhrif á rekstur og starfsmannahald heilbrigðiseftirlitsins. Framkvæmdastjóra falið að senda fyrirspurn á Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og óska svara við ýmsum spurningum sem snúa að stöðu heilbrigðiseftirlitsins og stöðu sveitarfélaganna verði breytingin að veruleika.
Ársfjórðungsuppgjör
Matthías Rúnarsson, bókari SSNV, fór yfir ársfjórðungsuppgjör samtakanna. Rekstur er almennt skv. áætlun.
Kjörnefnd SSNV
Skv. grein 4.3 í samþykktum SSNV skal stjórn kjósa kjörnefnd eigi síðar en 1. júlí fyrir aukaársþing eftir sveitarstjórnarkosningar.
Stjórn samþykkir samhljóða að eftirfarandi fulltrúar séu kosnir í kjörnefnd:
Guðmundur Haukur Jakobsson, Húnabyggð, formaður
Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Skagaströnd
Jódís Helga Káradóttir, Skagafirði
Eyþór Fannar Sveinsson, Skagafirði
Heiðrún Nína Axelsdóttir, Húnaþingi vestra
Auka ársþing SSNV
Framkvæmdastjóri fer yfir undirbúning aukaársþings sem haldið verður rafrænt 29. júní nk. kl. 16:00.
Framkvæmdastjóra falið að senda út fundarboð og dagskrá þegar sveitarfélög hafa skipað þingfulltrúa. Stjórn vill vekja athygli á að þingið er opið öllum kjörnum fulltrúum í landshlutanum til áheyrnar.
Starfsmannamál
Lögð fram uppsögn Magnúsar Barðdal Reynissonar úr starfi verkefnastjóra á sviði fjárfestinga.
Stjórn þakkar Magnúsi vel unnin störf í þágu samtakanna og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum.
Skemmtiferðaskip
Halldór Óli Kjartansson, starfsmaður Markaðsstofu Norðurlands, kemur til fundar og kynnir verkefni sem snýr að komu skemmtiferðaskipa.
Stjórn tekur jákvætt í erindið og þakkar Halldóri fyrir greinargóða yfirferð á verkefninu og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.
Ársreikningur Markaðsstofu Norðurlands
Lagður fram til kynningar í samræmi við samning um rekstur Áfangastaðastofu.
Fundargerðir framkvæmdahóps Farsældarráðs
Fundargerðir framkvæmdahóps Farsældarráðs lagðar fram til kynningar.
Skýrsla um starf Flugklasans
Skýrsla um starf Flugklasans lögð fram til kynningar.
Bókun stjórnar vegna breytinga á lögregluembættum
Lagt fram erindi frá Sigurði Hólmari Kristjánssyni, settum lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, þar sem hann lýsir áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðra breytinga dómsmálaráðherra/Alþingis á lögregluembættum.
Stjórn leggur fram eftirfarandi bókun:
Stjórn SSNV lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem mögulegar breytingar á skipulagi lögregluembætta kunna að hafa á þjónustu, störf og stjórnsýslu í landshlutanum.
Stjórn SSNV leggur áherslu á að löggæsla á Norðurlandi vestra gegnir lykilhlutverki í öryggi íbúa, farsæld barna og ungmenna og samstarfi við sveitarfélög, skóla, heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustuaðila. Mikilvægt er að allar breytingar á skipulagi taki mið af sérstöðu dreifbýlis, miklum vegalengdum og þeim aðstæðum sem einkenna Norðurland vestra.
Stjórn SSNV telur mikilvægt að starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi vestra verði ekki skert og að tryggður verði áframhaldandi rekstur lögreglustöðva á Sauðárkróki, Blönduósi og Hvammstanga. Þá er nauðsynlegt að standa vörð um þau sérhæfðu störf, þá þekkingu og það faglega starf sem byggt hefur verið upp innan embættisins á undanförnum árum.
Jafnframt leggur stjórn SSNV áherslu á að allar skipulagsbreytingar innan ríkisstofnana verði metnar með hliðsjón af byggðasjónarmiðum og áhrifum þeirra á atvinnu, þjónustu og samfélagsþróun í landshlutanum. Stjórnin telur mikilvægt að ákvarðanir um framtíðarskipan lögregluþjónustu á landsbyggðinni verði teknar í virku samráði við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila á svæðinu.
Stjórn SSNV leggur áherslu á að hagsmunir íbúa og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra verði hafðir að leiðarljósi við alla stefnumótun og ákvarðanatöku um skipulag lögregluþjónustu í landshlutanum.
Framkvæmdastjóra falið að senda bókunina til dómsmálaráðherra og þingmanna kjördæmisins.
Framlögð mál til kynningar
a) Fundargerðir
Stjórn SSNE, 7. maí 2026. Fundargerðin.
Stjórn stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál, 4. maí 2026. Fundargerðin.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 8. maí 2026. Fundargerðin.
Stjórn Markaðsstofu Norðurlands, 20. maí 2026. Fundargerðin.
Stjórn SSS, 13. Maí 2026. Fundargerðin. Stjórn SSA, 24. apríl 2026. Fundargerðin.
b) Umsagnir
Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun. Mál nr. S-79/2026. Umsagnarfrestur er til og með 30. júní 2026.
Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga). Mál nr. 93/2026. Umsagnarfrestur er til og með 19. júní 2026.
Skýrsla framkvæmdastjóra
Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.
Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12.37.
Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550