Fundargerð 139. fundar stjórnar SSNV, 5. maí 2026

Hér má nálgast fundargerð á pdf.

 

 

Þriðjudaginn 5. maí 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Teams. Hófst fundurinn kl. 9:00. 

Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.  

 

Dagskrá:  

 

  1. Áhersluverkefni - staða verkefna 

  1. Erindi frá Markaðsstofu Norðurlands 

  1. Drög að samstarfssamningi um Eim 

  1. Brák 

  1. Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra 

  1. Framlögð mál til kynningar  

  1. Fundargerðir   

  1. Umsagnir 

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra 

 

 

 Afgreiðslur 

 

  1. Áhersluverkefni - staða verkefna   

Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu og framvindu á áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. 

 

 

  1. Erindi frá Markaðsstofu Norðurlands   

Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands um skemmtiferðaskip. 

 

Stjórn þakkar Markaðsstofunni fyrir erindið og felur framkvæmdastjóra að óska eftir fundi með framkvæmdastjóra Markaðsstofunnar. 

  

  1. Drög að samstarfssamningi um Eim       

Lögð fram drög að endurnýjun á samstarfssamningi við Eim. 

 

Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram. 

 

  1. Brák 

Formaður SSNV og fulltrúi í fulltrúaráði Brákar gerði grein fyrir stöðu félagsins og hugsanlegri sameiningu við Leigufélagið Bríet. 

 

 

  1. Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra 

Erindi frá framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra lagt fram til kynningar. 

 

Stjórn þakkar fyrir erindið og felur framkvæmdastjóra að óska eftir fundi með framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. 

 

  1. Framlögð mál til kynningar   

    a) Fundargerðir

Stjórn SSH, 16. mars 2026. Fundargerðin. Stjórn SSH, 20. apríl 2026. 

Fundargerðin. Stjórn SSNE, 24. mars 2026. Fundargerðin. 

Stjórn SASS, 10. apríl 2026. Fundargerðin. 

Stjórn stýrihóps stjórnarráðsins um byggðamál, 13. apríl 2026. Fundargerðin

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, 17. apríl 2026. Fundargerðin

Stafrænt ráð sveitarfélaga, 18. febrúar 2026. Fundargerðin. 

 

   b) Umsagnir

Fjármálaáætlun fyrir árin 2027 – 2031. Mál nr. 577/2026. Umsagnarfrestur er til og með 4. maí 2026. 

Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun. Mál nr. S-79/2026. Umsagnarfrestur er til og með 30. júní 2026. 

 

Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031. 

 

  1. Skýrsla framkvæmdastjóra 

Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega. 

 

 

Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11.35.  

 

Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.