Hér má nálgast fundargerð á pdf.
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026, kom stjórn SSNV saman til fundar á Blönduósi. Hófst fundurinn kl. 12:30.
Mætt voru: Einar E. Einarsson, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Álfhildur Leifsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg R. Pétursdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
Línustæði, eignarréttur og endurgjald
Áhersluverkefni 2026
Kveikjan – framhald á umræðum
Framlögð mál til kynningar
Fundargerðir
Umsagnir
Skýrsla framkvæmdastjóra
Afgreiðslur
Línustæði, eignarréttur og endurgjald
Lögð fram til kynningar skýrslan “Línustæði, eignarréttur og endurgjald” sem Torfi Jóhannesson vann fyrir SSNV og SSV. Í samantekt Torfa er leitast við að varpa ljósi á þær leiðir sem nágrannalönd Íslands hafa farið við að greiða landeigendum fyrir notkun lands undir línustæði. Horft er til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, þar sem lagaumhverfi er sambærilegt og aðgengilegt. Jafnframt er markmiðið að ræða hvernig nýta megi þessa reynslu til að móta skýrari, réttlátari og nútímalegri umgjörð um slíkar greiðslur hér á landi.
Framkvæmdastjóra falið að undirbúa kynningu á skýrslunni í samstarfi við SSV fyrir sveitarfélög á starfssvæðunum.
Áhersluverkefni 2026
Framkvæmdastjóri fer yfir stöðu á áhersluverkefnum sóknaráætlunar fyrir árið 2026. Flest áhersluverkefnin voru samþykkt til tveggja ára, 2025-2026, og hafa hlotið samþykki stýrihóps stjórnarráðs um byggðamál.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að verkefnalýsingu vegna eftirfarandi verkefna:
2025-13 TextílLab á Blönduósi
2025-15 Fab-Lab smiðjur á Norðurlandi vestra
2026-01 Bæjarhátíðir
Kveikjan – framhald á umræðum
Framhald á umræðum frá 135. fundi stjórnar SSNV. Guðlaugur Skúlason, starfsmaður SSNV, kemur til fundar á Teams og fer yfir nánari upplýsingar um verkefnið Kveikjuna og stöðu þess.
Stjórn samþykkir að taka ekki þátt í verkefninu á árinu 2026. Framkvæmdastjóra falið að koma bókun áfram á hlutaðeigandi aðila.
Framlögð mál til kynningar
a) Fundargerðir
Stjórn SSH, 2. febrúar 2026. Fundargerðin.
Stýrihópur Stjórnarráðs um byggðamál, 5. janúar 2026. Fundargerðin.
Stjórn SSNE, 5. febrúar 2026. Fundargerðin.
b) Umsagnir
Grænbók um byggðamál. Mál nr. S-22/2025. Umsagnarfrestur er til og með 2. mars 2026.
Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Mál nr. S-31/2026. Umsagnarfrestur er til og með 20. febrúar 2026.
Framkvæmdastjóra falið að vinna drög að umsögn um Grænbók um byggðamál og drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Skýrsla framkvæmdastjóra
Skýrsla framkvæmdastjóra flutt munnlega.
Fleira var ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14.53.
Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Magnús Magnússon, Guðmundur Haukur Jakobsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sveinbjörg Rut Pétursdóttir.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550