Fjöldi umsókna í Vaxtarrými

Fjölmargar umsóknir bárust í viðskiptahraðalinn Vaxtarrými en umsóknarfresti lauk á mánudaginn, 20. september. Um er að ræða átta vikna viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpunarverkefna innan starfandi fyrirtækja á Norðurlandi. Áhersla hraðalsins er sjálfbærni, matur, vatn og orka.  

Næstu skref Norðanáttar, regnhlífasamtök Nýsköpunar á Norðurlandi, er að fara yfir umsóknir og meta hvaða verkefni falla best að áherslum hraðalsins. Þátttökuteymin verða kynnt mánudaginn 27. september. Hraðalinn hefst 4. október og stendur yfir til 26. nóvember.  

Umsóknir bárust víðsvegar af Norðurlandi og má sjá dreifinguna hér að neðan.  

Að Norðanátt koma SSNV, SSNE, Eimur, Nýsköpun í Norðri og RATA. Nánari upplýsingar er að finna www.nordanatt.is