Ertu með hugmynd? Krubbur á Húsavík 20. og 21. mars

Hraðið, miðstöð nýsköpunar á Húsavík, stendur fyrir Krubbi dagana 20.–21. mars 2026. Um er að ræða tveggja daga hugmyndasmiðju sem er opin öllum 16 ára og eldri, þar sem unnið er með nýjar hugmyndir, lausnir og skapandi nálganir við raunverulegar áskoranir.

Að þessu sinni er unnið með tvær áskoranir: annars vegar betri bæ fyrir börn og hins vegar opna áskorun, þar sem þátttakendur geta komið með eigin hugmyndir og þróað þær áfram með stuðningi leiðbeinenda og mentora. Á dagskrá eru meðal annars innblásturserindi, teymisvinna, pitch-þjálfun og kynningar á hugmyndum.

Krubbur er ætlaður öllum sem hafa áhuga á nýsköpun, óháð fyrri reynslu, og þátttaka er án endurgjalds. Áhersla er lögð á hugmyndaauðgi, frumkvæði og að efla færni til að þróa og miðla hugmyndum.

Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna á heimasíðu Hraðsins