Á Íslandi hefur áhugi á utanvegahlaupum og hlaupaviðburðum farið vaxandi á undanförnum árum og hefur Norðurland vestra stokkið á vagninn þar sem haldnir verða þrír hlaupaviðburðir í sumar í landshlutanum. Tvö þeirra komu ný inn í fyrra og eiga það sameiginlegt að byggja á frumkvæði heimafólks og eru styrkt af sóknaráætlun; Vatnsnes trail run og Molduxi trail.
Öll hlaupin eru til þess gerð að efla hreyfingu og útivist sem og að draga fram einstaka náttúru landshlutans og samheldin samfélög.
Fyrst verður fjallað um Vatnsnes Trail Run í Húnaþingi vestra, en einnig verður fjallað um Molduxa Trail og nýtt hlaup á Skagaströnd, Á Fram at Work – Skagastrandarhlaupið.
Skráning í hlaup:
- Skagastrandarhlaupið: 19. júlí 2026
- Vatnsnes trail run: 24. júlí 2026
- Molduxi trail: 7. ágúst 2026
Hlaupaviðburðir af þessu tagi skapa ekki aðeins tækifæri til hreyfingar og heilsueflingar heldur styrkja einnig samfélögin, auka sýnileika svæðisins og laða að gesti víðs vegar að. Með þessari fréttaröð vill SSNV varpa ljósi á það öfluga starf sem unnið er í landshlutanum við að þróa nýja viðburði og upplifanir fyrir íbúa og gesti.

Hlaupið var fyrst haldið fyrir ári síðan og tókst með glæsibrag og tóku hátt á annað hundrað keppendur þátt í einstakri veðurblíðu.
Hlaupahópurinn Fjallbrattar sér um skipulagningu og utanumhald hlaupsins. Í hópnum eru þær Ingveldur Ása Konráðsdóttir, Gerður Rósa Sigurðardóttir, Fanney Dögg Indriðadóttir, Margrét Guðrún Ásbjarnardóttir og Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir.
Hugmyndin að hlaupinu kviknaði þegar Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra (SSNV) auglýstu eftir aðilum til að skipuleggja hlaupaviðburð á svæðinu og var styrkur veittur úr Sóknaráætlun landshlutans fyrstu tvö árin.
Hlaupahópurinn Fjallbrattar höfðu tekið þátt í nokkrum skipulögðum utanvegahlaupum á Íslandi og sáu þarna frábært tækifæri til að heimfæra nýtt utanvegahlaup í sínu sveitarfélagi.

Þær útfærðu tvær skemmtilegar hlaupaleiðir 10 km og +20 km sem báðar byrja á Hvammstanga og liggja upp í fallega náttúru Vatnsnesfjallsins þar fyrir ofan. Einnig er í boði fjölskylduhlaup 1,5 km innan Hvammstanga og með þessum þremur hlaupaleiðum ættu flest allir að finna vegalengd og leið við sitt hæfi til að taka þátt!
Vel gekk að skipuleggja og halda hlaupið í fyrra og fengu þær marga styrktaraðila bæði innan svæðið og utan til liðs við sig. Auk Sóknaráætlunar Norðurlands vestra má þar nefna Húnaþing vestra, Kaupfélag Vestur Húnvetninga, KIDKA, Hótel Laugarbakka, Sjávarborg, North West, Hleðsla, Ró CBD, Hlaðan Hvammstanga, HYBRD, Eylíf, Mörk, 66°North, R8IANt og Dave and Jones Iceland.
Í ár bætist svo í hóp styrktaraðila og eru Fjallbrattar þakklátar þeim fjölmörgu fyrirtækjum og aðilum sem styðja við og styrkja hlaupið þannig að hægt sé að halda það. Þessi stuðningur gerir það einnig að verkum að hægt er að gera umgjörð hlaupsins og framkvæmd ennþá betri og markvissari og auka sýnileika fyrirtækja, þjónustu og þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Einnig eru margir sjálfboðaliðar sem vinna frábært starf til að aðstoða við framkvæmd hlaupsins og eru Fjallbrattar þakklátar þeim fyrir sitt framlag. Þær segja að það hafi verið mjög gaman og lærdómsríkt að halda hlaupið í fyrra og þær vinni nú að því að gera gott hlaup enn betra í ár!
Húnaþing vestra er eitt af mörgum Heilsueflandi samfélögum á landinu. Að halda utanvegahlaup styður við og býr til fleiri möguleika og tækifæri til hreyfingar og útiveru sem hefur jákvæð áhrif á bætta heilsu og líðan fólks. Segja þær að gaman sé að sjá hvað Vatnsnes Trail Run 10 km leiðin hafi verið farin mikið síðan þær merktu leiðina fyrir ári síðan og íbúar og aðrir hafi greinilega nýtt sér að ganga eða hlaupa leiðina þegar þeir vissu af henni og gátu fylgt leiðarmerkingum.
Hlaupahópurinn Fjallbrattar stefnir á og vonast eftir að Vatnsnes Trail Run verði fastur liður í viðburðadagatali Norðurlands vestra og styrki þar með heilsueflingu, ferðaþjónustu og fyrirtæki í sveitarfélaginu.
Fjallbrattar vonast eftir að sem flestir nýti tækifærið og skrái sig og taki þátt í Vatnsnes Trail Run. Nú sé bara að velja leið við hæfi, finna hlaupaskóna og mæta svo í brautina á Hvammstanga þann 24.júlí!
Frítt er fyrir alla í Fjölskylduhlaupið, öll börn fá þar keppnisnúmer og glaðning að hlaupi loknu og allir þátttakendur í öllum leiðum fá frítt í sund í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra. Einnig verða veglegir vinningar og útdráttarverðlaun í 10 og +20 km leiðunum og miði er jú alltaf möguleiki :)
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550