Styrkir til markvissari og loftslagsvænni áburðarnotkunar

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hafa ákveðið að ráðstafa 80 milljónir króna úr Loftslags- og orkusjóði til fjárfestinga í búnaði sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda í landbúnaði. Markmiðið er að styðja bændur í nýsköpun og bætta búrekstur með markvissari áburðardreifingu.

Styrkir verða veittir til tækja sem bæta nýtingu áburðar, t.d.:

  • GPS-tækni til nákvæmari dreifingar

  • Búnaður til niðurfellingar/ -lagningar á áburði

  • Önnur tæki sem bæta nýtingu áburðs og geta dregið úr áburðarnotkun í landbúnaði

Hámarksstyrkur er 40% af kostnaði og að hámarki 10 milljónir króna á hvern umsækjanda. Einnig er hægt að sækja um fyrir sameiginleg tækjakaup, t.d. í gegnum búnaðarfélög.

Umsóknir þurfa að fylgja sundurliðaðri verk- og kostnaðaráætlun og staðfesting á kaupum er skilyrði fyrir greiðslu. Umsóknarfrestur er til 22. desember 2025 og sótt er um á vef Loftslags- og orkusjóðs.

Nánar inn á stjórnarráðinu.