Opnað fyrir umsóknir um framlög til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða – C1

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð C.1 Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða.

Veitt verður allt að 130 milljónum kr. fyrir árið 2024. Umsækjendur skulu taka mið af úthlutunarreglum innviðaráðherra og auglýsingu um styrkina, sjá tengla hér að neðan.

Landshlutasamtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra geta í samstarfi við haghafa sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild.

Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf með gerð viðaukasamninga við sóknaráætlanir viðkomandi landshluta um tiltekin verkefni eftir forgangsröðun heimafólks.

Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudagsins 22. janúar 2024. Þriggja manna valnefnd metur allar umsóknir og gerir tillögu til innviðaráðherra að úthlutun styrkja. Áætlað er að niðurstöður ráðherra liggi fyrir í febrúar 2024.

Ganglegir hlékkir:

Styrkúthlutun SSNV á síðasta ári

Auglýsing um framlög vegna sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

Reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036

Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036