Á síðasta ári var samþykkt á fundi útflutnings- og markaðsráðs endurskoðuð langtímastefna fyrir íslenskan útflutning. Íslandsstofa leiddi vinnu við gerð stefnunnar, sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífs. Markmið hennar er að stuðla að auknum útflutningstekjum og sjálfbærum hagvexti á Íslandi.
Í febrúar og mars 2026 leggja fulltrúar Íslandsstofu land undir fót, með Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóra Íslandsstofu í fararbroddi, og fara hring um landið til að kynna endurskoðaða stefnu.
Þriðja stopp ferðalagsins er Sauðárkrókur þar sem boðið verður til kynningarfundar í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Fundurinn fer fram á veitingastaðnum Sauðá á Sauðárkróki þann 16. febrúar kl. 11.30-13:30. Boðið verður upp á súpu að hætti heimamanna og kaffi.
Á fundinum verður farið yfir helstu útflutningstækifærin fram á veginn og greint frá þeirri þjónustu og aðgerðum sem Íslandsstofa skipuleggur til stuðnings útflutningsfyrirtækjum. Þá mun Karl Guðmundsson, verkefnastjóri stórfjárfestinga í forsætisráðuneytinu, kynna samstarf ráðuneytisins og Íslandsstofu um stórfjárfestingar og fjalla um atvinnustefnu stjórnvalda.
Fundurinn er einkum gagnlegur fyrirtækjum sem starfa við eða hyggja á útflutning, sem og öðrum hagaðilum íslensks útflutnings. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.
Nánari upplýsingar veitir Brynhildur Georgsdóttir, brynhildur@islandsstofa.is
---
Nánar um Útflutningsstefnuna
Framtíðarsýn langtímastefnunnar er að Ísland verði leiðandi land á sviði sjálfbærs útflutnings. Samkeppnisforskot Íslands felst ekki í magni eða verði, heldur í hágæðavörum sem byggja á hreinleika, tækniþekkingu og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Aðgreining landsins byggir því á markvissri mörkun og markaðssetningu í krafti ímyndar Íslands sem leiðandi lands í sjálfbærni, til að skapa aukinn áhuga og eftirspurn eftir íslenskum hágæðavörum og þjónustu. Nánar má lesa um stefnuna hér.
Stefnan var unnin í víðtæku samráði við atvinnulíf, hagsmunasamtök og stofnanir, en um 400 fulltrúar allra helstu útflutningsgreina tóku þátt í mótun hennar. Stefnan felur í sér mælanleg markmið, áherslu atvinnugeira og skilgreind markaðssvæði til næstu ára. Árlega gefur Íslandsstofa út aðgerðaáætlun til stuðnings íslenskum útflutningi. Aðgerðir ársins má skoða hér.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550