Hinsegin hátíð Skagafjarðar fer fram dagana 10.–15. ágúst og fram undan er litrík og fjölbreytt vika þar sem gleði, samvera og fjölbreytileiki eru í fyrirrúmi. Hátíðin er stykrt af Sóknaráætlun Norðurlands vestra.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði alla vikuna og ættu flest að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem boðið verður upp á eru regnbogaverslun, fánasmiðja, hinsegin kaffihús, sérstakir regnbogamatseðlar og hamingjustundir, auk fleiri viðburða fyrir ólíka aldurshópa.
Íbúar og fyrirtæki í Skagafirði eru hvött til að taka þátt í hátíðarhöldunum og draga hinseginfánann að húni á flaggstöngum sínum út vikuna, þar til hátíðinni lýkur laugardaginn 15. ágúst.
Við hvetjum íbúa Norðurlands vestra og gesti svæðisins til að kynna sér dagskrána, mæta á viðburði og taka þátt í gleðinni.
Gleðilega hinsegin viku í Skagafirði!
Nánari upplýsingar og dagskrá hátíðarinnar má finna á vef Skagafjarðar.
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550